Fréttir
Umhverfismál eru fyrir alla Vistlegra og fallegra umhverfi er að verða mun stærri liður í ákvarðanatöku íbúa um val á heimili og bæjarfélagi. Kannanir sem við gerðum í upphafi okkar umhverfisátaks, fyrir 4 árum síðan, sýndu að auk menntunartækifæra, atvinnu og úrvals í þjónustu skipti hreint og vistlegt umhverfi mestu um val á framtíðarbúsetu. Umhverfismál kalla á sérfræðiþekkingu. Við hreinsun umhverfis, sem getur verið alvarlega mengað, eða þar sem hreinsa skal þunga hluti, þarf fagþekkingu og búnað við hæfi. Reykjanesbær leitaði því eftir samstarfi við reynda aðila á þessu sviði, þ.á.m. Bláa herinn, sem hefur sérþekkingu á hreinsun við sjávarstrendur. |
|
Samvinna Blá hersins og SEEDS
|
|
Hreinsað til á FitjumRuslið var vel á annað tonn og tókst þetta verkefni mjög vel. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og voru montin af því að vera liðsmenn Bláa hersins og verðskulduðu styrk úr Umhverfissjóðnum að upphæð kr. 150 þúsund. Það gerði alveg úrhellisrigningu seinna skiptið en það kvartaði enginn. Kærar þakkir fær allur hópurinn. |



