Fréttir

Umhverfismál eru fyrir alla

Vistlegra og fallegra umhverfi er að verða mun stærri liður í ákvarðanatöku íbúa um val á heimili og bæjarfélagi. Kannanir sem við gerðum í upphafi okkar umhverfisátaks, fyrir 4 árum síðan, sýndu að auk menntunartækifæra, atvinnu og úrvals í þjónustu skipti hreint og vistlegt umhverfi mestu um val á framtíðarbúsetu. Umhverfismál kalla á sérfræðiþekkingu. Við hreinsun umhverfis, sem getur verið alvarlega mengað, eða þar sem hreinsa skal þunga hluti, þarf fagþekkingu og búnað við hæfi. Reykjanesbær leitaði því eftir samstarfi við reynda aðila á þessu sviði, þ.á.m. Bláa herinn, sem hefur sérþekkingu á hreinsun við sjávarstrendur. 



Samvinna Blá hersins og SEEDS

Vinnuhópurinn frá SEEDS Blái herinn tóku höndum saman og heimsóttu Akranes.  Blái herinn og SEEDS tóku sig til og hreinsuðu fyrir Írska daga á Akranesi ein 8 tonn úr fjörunni hjá Þorgeir og Ellert. Mjög margir komu til okkar og lofuðu framtakið. Nóg er eftir en við vorum í tvo daga að vinna þarna í 20 stiga hita og sól. Tókst mjög vel.

 


Hreinsað til á Fitjum

Keravafarar gerast liðsmenn Bláa hersins. Hópur sem keppir fyrir hönd Reykjanesbæjar á árlegu vinarbæjarmóti vinabæja Reykjanesbæjar tóku áskorun Bláa hersins og hreinsuðu í og við Fitjar. Þessi hópur mætti tvisvar sinnum og vann samtals í rétt rúmar 100 klukkustundir.

Ruslið var vel á annað tonn og tókst þetta verkefni mjög vel. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og voru montin af því að vera liðsmenn Bláa hersins og verðskulduðu styrk úr Umhverfissjóðnum að upphæð kr. 150 þúsund. Það gerði alveg úrhellisrigningu seinna skiptið en það kvartaði enginn. Kærar þakkir fær allur hópurinn.